Velkomin á Krullupinni.is :)

Eva Rut -

23.11.2007 23:37:05 / EvaRut

ný síða kíkja á hana takk ;)

Halló halló allir sem komið hingað inn núna er ég með nýja síðu sem er

http://www.123.is/geva/
 

 

Endilega kíkið við og kommentið gaman að sjá hverjir fylgjast með mér ;)

BÆjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:18:26 / EvaRut

ný síða

Ný síða www.123.is/gbjorgvin

endilega kíkið þangað nenni ekki aðv era með þetta lengur því þetta er alltaf niðri ;( 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 07:30:12 / EvaRut

bloggleysi á bænum

Góðan daginn

Af okkur er allt gott að frétta, ég hef ekkert bloggað í nokkra daga :0)

Um helgina vorum við bara inni í íþróttahúsi að fylgjast með mótum sem voru í gangi, á laug þá fórum við á firmamót Víðis sem var mjög skemmtilegt á köflum ;)

Á sunnudaginn þá fór ég á körfuboltamót Fjölnis en Jóna var að keppa þar svo ég fór með Mömmu, Hebu og Jónu eldsnemma á sunnudagsmorgunn í bæjinn ;)

Við ætluðum einnig í Toys r us því ég hafði ekki farið þangað, en guð minn góður það var stappað af bílum á bílastæðinu eins og það er búið að vera síðan búðin opnaði, samt var ekki svo troðið á kössunum,hvað er málið er fólk bara þar til að skoða, þegar við vorum svo að fara heim þá var umferðarstífla frá smáralindinni og að fráreininni að nýju barnaversluninni just 4 kids, um leið og við vorum komin þangað gátum við farið í 50 allavega, erum við að tapa okkur eða er fólk komið með nóg af háum verðum í búðum og ætla sér eingöngu að versla ódýrt fyrir jólin þá með því að nýta sér öll þessi opnunartilboð. 

Í gær var Gummi bara heima með stelpuna á meðan ég var að vinna og fór í plokkun og litun, Hann er búin að vera lasin greyið.

Á sunnudaginn fórum við í matarboð og það klikkar ekki maturinn á þeim bænum. Eftir það fór ég í saumó, það var fámennt en góðmennt ;) hehe mjög skemmtilegt, takka fyrir kvöldið stelpur ;)

Ég held ég hafi fengið góðan innblástur í saumóinum eða þá að ég sé svona áhrifagjörn en allavega þá tók ég ákvörðun í gær að hætta með Hebu á brjósti ;) ég er búin að vera á leiðinni lengi að hætta með hana en það er aldrei rétti tíminn ;) en svo erum við báðar tilbúnar enda pæjan orðin 13 mánaða ;) Ekkert brjóst í nótt, það gekk bara mun betur en ég hélt, hún vaknaði hálf 12 og grét mjög sárt í 15 mín og sofnaði svo, var svo að rumska mikið eftir 3, en grét svo ekkert sárt aftur fyrr en hálf 6 í svona 20 mín og núna sefur hún eins og engill, ég er bara ein hérna vöknuð á leið í vinnuna ;)

Ég vona að þetta eigi bara eftir að ganga vel í framhaldinu, núna verð ég bara að vera sterk það má alls ekki gefa neitt eftir núna.

Jæja ætla að tíja mig til, sjáumst síðar ;) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 22:38:14 / EvaRut

helgi

Jæja einn vinnudagur eftir í þessari vinnuviku og það styttist óðum í helgarfrí hvað þá jólin sjæsinn og dæsinn ;)

 Af okkur er allt gott að frétta,bara alltaf það sama gamla ;)

Vinna vinna og aftur að vinna, reyndar gleymi ég aldrei að borða, sofa og sinna pæjunni ;)

Nú er allt á fullu í vinnunni fyrir undirbúning dag íslenskrar tungu þar gerum við eitthvað eftir Jónas Hallgrímsson, svo fer að koma að jólasýningunni okkar og þar ætlum við að sýna atriði,

í dag kom Pétur og Úlfurinn leikhús í leikskólann og það var virkilega gaman að fylgjast með þessu leikriti tær snilld, ;) Leikarinn lék þetta svo vel og náði svo athylgi barnanna allan tímann, mjög flott og skemmtilegt leikrit ;)

Það er ógeðslega kalt úti burrrrrrrrr

í dag þjálfaði ég 3 og 4 flokkinn fyrir Þurý og svo á laugardaginn ætlum við að taka þátt í firmakeppninni fyrir Neslagnir ;) hehe ég veit ekki ég er mest kvíðinn en samt pínu spennt, alltaf gaman að spila fótbolta en ég veit ekki hversu spennandi það er að fara og vita það að við eigum eftir að steinliggja SHITTT

Jæja þetta er nóg í bili ætla að kíkja a´koddann er búin að vera pínu þreytt í allan dag, eins og ég sé að fá einhverja ljóta flensi en ég vona svo innilega ekki ;)

 

Bæjó  


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 21:44:55 / EvaRut

allt í drasli

Jæja allt að gerast

Af okkur er allt gott að frétta við erum alveg hress á þessum bæ, Heba Lind fór í 12 mánaða sprautu í dag og skoðun, það gekk allt mjög vel nema hvað hún vildi nú ekki að læknirinn væri of nálagt henni en samt svo dugleg gólaði pínu þegar hún var sprautuð litla snúllan ;)  Læknirinn var mjög ánægður með hana og hún samsvaraði sér svo vel og hún braggast perfect sagði hann ;) og þar með hefur hún dúxað í 4 skiptið ;) enda algjör prinsessa ;) Hún var með roða í vinstra eyranu en hún hefur ekki sýnt neinn pirring svo við eigum ekki að hafa áhyggjur af því ;)

Tengdó fór í hjartaaðgerð í dag og það heppnaðist bara vel sem betur fer og vonandi nær hún sér núna vel og fer vel með sig. Það er nú ekki lítið búið að ganga á.

Afi þurfti að liggja á spítala eina nótt vegna há blóðþrýstings, svo í gær þá dó bróðir hans, þetta er barra leiðindarfréttir fram og aftur,

Um helgina er fótboltafirmakeppni og við stelpurnar erum með lið, erum reyndar enn að smala í liðið en ég er samt pínu stressuð ;) og ég hlakka geggjað til líka því ég elska að spila fótbolta ;)

dísöss ég horfði á allt í drasli gamlan þátt og ég fékk svo mikið ógeð að ég skellti mér að þrífa hér og þar heima hjá mér, þannig ef ég verð löt við þrifin þá skelli ég mér fyrir framan tv og horfi á einn slíkan hátt. 

jæja jólin eru eftir tæpa 50 daga jamm trúið þið því ??? Það verður sennilega klikkað að gera þangað til svo þau verða komin til mín áður en ég veit af ;) ég hlakka mjög mikið til.

jæja stelpur bolti annaðkvöld kl 20 allar að mæta.

Loksins er saumó ég hlakka mikið til ;) 

Góða nótt og hafið það gott. 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:54:56 / EvaRut

vinnuvikan að hefjast á ný

Góða kvöldið þá er þessari helgi lokið, hvað er málið með þessar helgar þær líða alltof fljótt og ég er viss um að það koma jól áður en við vitum af ;)

Um helgina voru Gunna og Tóti hjá okkur við fórum í bæjinn eftir æfingu í gær og við kíktum í 66 N og þar versluðum við smá svo fórum við í Ikea og það var voðalega mikið jólalegt þar ;) en við fórum bara hratt þar í gegn því Heba var orðin svo þreytt, við hittum þar margt fólk sem við þekktum. Ætli ég fari ekki bara aftur þangað áður en það koma jól, ég elska jólin ;)

Ætli ég fari ekki að verða hálfnuð að versla jólagjafirnar :Þ þær verða í kringum 35.

Við vorum að koma ur mat frá mömmu, pabba og co, þar var humar og læri í matinn ;) jOmmí ég borðaði að sjálfsögðu yfir mig ;)

Anna systir verður hér í 2 daga í viðbót og svo fer hún heim en kemur eftir rúman mánuð aftur til að flytja hingað á meðan maðurinn hennar fer til Íraks sössss.

Það var bara allt crazy fyrir helgi og englum vísað úr landi, er það ekki bara gott mál eða hvað ?

skemmtilegir þættir " ertu skarpari en skólakrakki " ? en allltof mikið af auglýsingum á milli, alveg frekar pirrandi ;)

Jæja þetta er orðið ágætt í bili, vonandi fer veðrið að hægja á sér og öllum fer að líða betur í kringum mig :Þ

Bæjó og góða vinnuviku 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 20:13:51 / EvaRut

hæ hó hopp og hí ;)

Helgarfrí helgarfrí helgarfrí!!!

Vá ég get ekki annað sagt en að ég sé búin að bíða eftir þessu helgarfríi sem var að hefjast í dag.

Ég vona að þetta blogg komist inn því síðan er búin að vera eitthvað leiðó undanfarið, það er ekki það að ég nenni ekki að blogga heldur vill bloggið ekki fara inn og ég veit ekki ástæðuna fyrir því ;/ ömó.

Ég er bara sátt við stelpurnar í boltanum hjá mér þær mæta alltaf vel og eru virkilega skemmtilegar ;)

Um helgina verða Gunna og Tóti hjá okkur en við vorum búin að ákveða að taka bróstið af Hebu Lind í gær því tíminn hentaði svo vel en neiii þá f0ttuðum við að þau yrðu hjá okkur og það er ómögulegt að láta barnið gráta ef það fer þannig og vekja alla í húsinu ekki bara okkur ;( en við finnum annan tíma ;)

HEnnar tími kemur ég veit það ;)

Ég er komin í algjöran jólafíling mig langar að fara að gera jólakortin, pakka inn jólagjöfum,smakka jólaölið og hlusta á skemmtileg jólalög  I love it ,) hver veit nema að ég fari bara að þrífa fyrir jólin mjög fljótlega sko stærri hreingerningu heldur en ég geri alla hina 364daga ársins ;)

 

Jæja þetta er ágætt ég ætla að horfa á tekinn og fá mér eitthvað nammi ;)

 

Góða helgi alle sammen ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 17:09:11 / EvaRut

Buenos dias, guten tag, magandag umaga, Góðan daginn, góðan morgunn, good morning, djin dobry. Ja hver veit nema að það séu allra þjóða fólk að lesa bloggið ;)

Jæja í kvöld held ég minn fyrsta foreldrafund á vegum Víðis, svaka stuð. Það verður bara gaman.

Við nutum veðurblíðunnar í gær og fórum 2 göngutúra í gærdag, fyrst til að láta Hebu sofna og svo eina ferð með hana á snjóþotunni, henni fannst svo gaman  og veðrið var með eindæmum geggjað, hvít jörð, sól og hiti ;) gerist bara á Íslandi. Það hefur verið fínt veður í dag líka en samt mun kaldari, veðrið verður víst ekki svona næstu daga því það á að gera vonskuveður á morgunn ;/ 

Heba er orðin svo dugleg stendur upp allsstaðar og labbar með égheld það verði samt doldið þar til hún fer að ganga því hún er ennþá óörugg að sleppa takinu ;)

ég veit ekki hvað ég er búin að reyna margar tilraunir að blogga en það klikkar alltaf óþolandi. ég væri alveg til í að breyta um síðu svo ég geti komið bloggi inn daglega.

Ógeðslega spennnnandi í leiðarljósi ég er viss um að Reva og Josh verði aftur saman sem er gott mál að mínu mati en það virðist ekki alveg vera að ganga hjá Ridge í B&B ;)  okey ég skal róa mig í þessum sjóðheitu þáttum ;)

 

Bestu kveðjur  


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 22:57:06 / EvaRut

frí frí frí ;=)

Góða kvöldið góðir hálsar líka þið sem eruð með hálsbólgu !!! Nei nei grín ;)

Af okkur er allt sæmilegt að frétta. Gummi skólast bara og skólast, ásamt því að vinna og svo er Heba Lind að dafna vel, hún er enn með hósta en hann fer áður en hún giftir sig ;), Hún stendur upp allstaðar og er samt ennþá oggupínupons chicken þar sem hún stendur upp og gólar svo á hjálp en er samt duglegri að fara niður sjálf, hún verður farin að ganga áður en ég veit af .

Í dag hélt ég fótboltapizzupartý fyrir stelpurnar í boltanum, ég gat ekki skynjað betur en að þær skemmtu sér konunglega, en þær mættu flestar í náttfötum, borðuðu pizzu og fóru svo í fullt af leikjum, Brynja systir aðstoðaði mig sem betur fer og þetta fór allt vel fram og ekki spurning um að við höldum svona partý aftur fyrir jól ;)
Aðsóknin í boltann er alltaf að aukast sem er alveg frábært þannig að markmiðið mitt er að rætast. :Þ

Ég átti að mæta á stig 2 þjálfaranámskeið í byrjun nóv. En þar sem það var ekki  nóg þáttaka til að halda 2 námskeið þá var mér boðið í dag að vera með á námskeiðinu sem er um helgina takk fyrir, það hentar mér engan veginn, fyrirvarinn stuttur og alls ekki tíminn sem ég hefði valið þannig ég verð að lúta höfði (segir maður það ekki) og taka námskeiðið eftir 1 ár ;(

Okey ég blogga bara um það !!!

Tengdó fór í hjartaþræðingu um daginn sem gekk vel, hún liggur samt enn inni þar til hún kemst í næstu aðgerð. Hún er mun skárri í dag heldur en hún hefur verið og ég vona innilega að hún nái sér, þetta er ofsalega skrýtið þegar fólk sem er “stálhresst” verður allt í einu mjög veikt. Þannig að Gummi er tíður gestur á HSS en það skemmir ekki fyrir að þegar ég lá á fæðingardeildinni kynntist hann kakóvélinni sem varð ansi góð vinkona hans, þannig að hann fer stundum 2 sinnum á dag núna til m0mmu sinnar,ég held það sé nú samt ekki kakóvélin sem er alveg svona áhugasöm ;)

Haustfrí/vetrarfrí er núna hjá Gumma í IH (Iðnskólanum í Hafnarfirði) Gerðaskóla Garði og á fleiri stöðum ;)  Okey ég skal röfla en ég held ég hafi fullan rétt á því, þegar þetta vetrafrí/haustfrí byrjaði þá var það fyrst og fremst hugsað til þess að börnin og kennarar fengu smá frí því skólaárið var lengt, ég segi þá hvað með leikskólann ??? Árið hjá leikskólabörnunum er mun lengra heldur en hjá grunnskólabörnum, Hvað með þeirra hagi, þurfa þessi litlu kríli ekki frí eins og aðrir, þetta er oft fullur vinnudagur hjá þessum krílum að vera í skólavistun í marga tíma á dag. Mér skylst að Grunnskólar, framhaldsskólar og meir að segja tónlistarskólar fari í haust-/vetrarfrí og ég spyr enn og aftur hvað finnst ykkur um þetta ? ég er svo hlynnt því að leikskólabörnin fái líka frí.

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra ég er orðinn ansi þreytt og HRIKALEGA þreytt á rigningunni ;(

Góða helgi alle sammen og blev godt veð hvor anden ;) Hvað segiru Stína er þetta ekki í áttina ;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 19:14:33 / EvaRut

inn með þig bloggggg

Alveg hel magnaður fjandi, alltaf þegar ég kem með blogg þá rennur það í sandinn Anskkkkkkk

Í stórum dráttum þá var bloggið á þennan hátt, ég hef ákveðið mig að þjálfa bara 7 og6 fl kv í stað 7.6. og 5.flokk. Þegar ég sagði stelpunum frá því í gær heyrði ég vara OHHHH og svo knúsuðu þær mig alveg bless og algjörar dúllur, ég var að hugsa á þeirri mínútu að halda bara áfram með þær ég fékk gæsahúð og alles algjörar prinsessur ;) en hver veit nema ég fái að þjálfa þær í framtíðinni ;)

Þetta er aðallega að sökum tímaleysis því barnið mitt verður að fá smá tíma líka ;)

Bolti í kvöld kl 20 allar að mæta ;) vorum 21 seinast.

Hlakka til næsta saumó.

Skipulagsdagur á morgunn, svo dagurinn verðu öðruvísi. ;) bara gaman;)

 

fínt framtak hjá bænum að bjóða foreldrum ungra barna á SOS ég væri sko alveg til ;) en ég er ekki klár með aldurinn ;)

Jæja fínt í bili er að fara að þjálfa, svo að sækja prinsessuna svo á fund og þaðan í bolta eftir það fer ég að sofa. SHITTT mér vantar tímaí sólahringinn ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 21:42:45 / EvaRut

flott framtak í sandó ?

Skorað á bæjarstjórn að endurskoða leikskólagjaldskrá

Undirskriftalistar hafa verið afhentir bæjarstjórn Sandgerðis þar sem skorað er á hana að endurskoða gjaldskrá leikskólans með tilliti til einstæðra foreldra og námsmanna. Undirskriftalistinn var settum upp í leikskólanum í kjölfar umræðu á foreldrafundi þar sem gjaldskráin var til umræðu.

Í bréfi með undirskriftalistanum segir að gjaldskrá bæjarins sé sambærileg við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þegar um er að ræða gift fólk eða í sambúð. Hins vegar gegni allt öðru máli þegar kemur að afslætti til einstæðra foreldra og námsmanna. Í bréfinu er bent á að afslátturinn sé rétt rúm 7%. Það sveitarfélag sem veiti næst minnsta aflsláttinn gefi 24%. Jóhanna Sól Harðardóttir hafði frumkvæði að undirskriftalistanum sem hún afhenti bæjarstjóra fyrir helgi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 20:30:49 / EvaRut

íbúaþing á morgunn ;)

Hæ Hæ elsku vinir !!!

Það er nú alls ekki leiðinlegt að bæjarstjórinn sjálfur kommenti við bloggið mitt ;) en það er bara gaman að þessu. íbúaþingið er annaðkvöld og það er gaman að sjá hvað á að gera næstu árin ég trúi ekki öðru en að það verði skemmtilegur og málefnalegur fundur.

Jæja litlan var veik fimmtudag og föstudag og hitalaus á föstudaginn og fín í gær en er samt enn með ljótan hósta og er búin að vera ferlega lítil í dag ég hugsa að það sé hálsbólga og tannataka ;) en hún sofnaði ferlega knúsinn áðan ogþegar það gerist þá tími ég ekki alveg að sleppa henni hehe ;)

Margrét Lára var ekki valin besti leikmaður kvenna sögusagnir herma að stelpurna hafa talað sig saman um að velja hana ekki , er þetta ekki tær óheiðarleiki ef það er réttt sem sögur segja ?? Er hún of montin með sig eða hvað er máliÐ ??

mér finnst samt Hólmfríður mjög flottur leikmaður ;)

jæja elskiðu friðinn og strjúkið kviðinn ;)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 08:39:57 / EvaRut

Hvað er að ????

66 prósent vilja Guðjón sem landsliðsþjálfara

mynd
Guðjón Þórðarson stýrði ÍA í sumar. Mynd/Eiríkur

Meira en þrjú þúsund manns tóku þátt í könnun Vísis í gær sem spurði hvort Guðjón Þórðarson eigi að taka við starfi landsliðsþjálfara.

Niðurstaðan er afgerandi en 66 prósent þátttakenda svöruðu spurningunni játandi.

Eyjólfur Sverrisson er núverandi landsliðsþjálfari en undir hans stjórn hefur árangur landsliðsins verið slakur. Nú síðast tapaði Ísland fyrir Liechtenstein á útivelli, 3-0.

Mikill þrýstingur er á Eyjólfi og KSÍ um að breytingar verði gerðar til að bæta árangur landsliðsins.

Guðjón stýrði landsliðinu árin 1997-1999 með góðum árangri. Undir hans stjórn vann liðið ellefu leiki og gerði sex jafntefli í 25 leikjum.

 

Hvað er málið ??? Ég vona svo innilega að hann muni aldrei taka við landsliði íslands. Þetta er einn þreyttasti maður veraldar. Hann er alltaf að koma sér í bobba og þegar hann kemur fram í íþróttaviðtölum þá jaðrar við að ég gubbi. Ég myndi nú frekar vilja sjá þarna Ólaf Jóhannesson sem hefur gert góða hluti með FH undanfarin ár.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 21:13:41 / EvaRut

Helgi !!!!

Hæ Hæ

þá er komin helgi, stelpan er búin að vera hitalaus í dag en er samt enn mjög kvefuð of er að jafna sig.

þegar ég kíkti á vef víkurfrétta þá er bara önnur hver frétt um Garðinn eða Garðbúa ;)

íbúaþingið, 13 þúsundasti íbúi RNB sem er dóttir Kristínar Magg, svo Viktor Gísla sem er að fara út í æfingu hjá úlfunum í ensku 1.deildinni, Alltaf gaman þegar að það gengur vel ekki satt ,)

Allt brjálað að gera hjá mér þessa dagana en ég hef ákveðið að vera bara með 6 og 7 flokk stelpna en ekki 5 flokk, því annars væri vinnudagurinn hjá mér 7:45 - 17:15 alla daga frekar langt þar sem litla prinsessan mín þarf auðvitað mömmu bestu, ji ef það er ekki aðallega ég sem þarf Hebu mína.  Hitt dugar að þjálfa 2 flokka í bili ,)

HAldið ekki að við séum crazy ??? Við pöntuðum okkur far til spánar næsta sumar eða í júlí ;) bara geggjað ætli við verðum ekki hátt í 30 manns úr Garðinum ;) Gaman gaman ;)

Djöf getur maður röflað út af öllu saman ;) en nú er ég nett pirruð út í suma ökumenn, núna undir kvöldið fórum við í Kef, rétt á meðan við ókum í kef og til baka þá fengum við næstum bíl framan á okkur en það var bíll sem tók framúr og rétt náði. svo þegar við vorum á leiðinni tilbaka þá kom bíll á fleygiferð úr sandgerði í hringtorgið og hann fór í hring því hann náði ekki beygjunni vegna hraða. Djöf verður maður þreyttur á svona liði, það er greinilegt að það eru allir í stórhættu á þjóðveginum, maður veit aldrei hvernig eða hvernig ástand er á ökumanninum í næsta bíl. ARGGGGG

Jæja nóg komið ! Góða helgi. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:46:35 / EvaRut

veikindi að herja á heimilið ;(

góða kvöldið af okkur er allt gott að frétta neeeeema að Heba Lind er lasin ;( Hún vaknaði kl 12 í gærkvöldi á orginu og það mátti ekkert eiga við hana og hún bara hágrét, reyndar var hún orðin kvefuð daginn áður. Hún fékk stíl og svaf til hálf 2 þá vaknaði hún aftur á orginu og þá þurfti ég að labba með hana um gólfin til 4 og þá loks sofnaði hún og svaf til hálf 7. Þannig ég svaf mjög lítið og hún mjög kvefuð og með hita,litla snúllan en nú er hún sofnuð og ég vona að sjálfsögðu að hún sofi bara nóttina og vakni eldhress á morgunn. Dream on

Alltaf jafn skemmtilegt veður á þessu blessaða landi ;)

ég var búin að blogga 4 sinnum um daginn en það datt alltaf út og ég gat ekki sett neitt inn á síðuna ARG.Maður getur nú orðið nett pirraður á þessu.

Þjálfaramálin hjá Víði komin á hreint. Steinar verður áfram í Garðinum og ég hlakka bara mjög mikið til sumarsins ég er viss um það að við eigum eftir að ná góðum árangri ;)

Nú er október hálfnaður rúmlega og það þýðir að jólin séu eftir 2 mánuði, fyrsta mótið hjá stelpunum og svo er útskrift einnig í Desember. Jamm Jólin koma áður en ég veit af ;)

Berglind Elma kom í dag og var hjá okkur í smátíma, við skemmtum okkur konunglega, ltlan hresstist nú að sjá frænku sína en þær hlógu að hvor annarri og klöppuðu og svaka fjör hjá þeim ;)

Íbúaþing á mánudaginn þar er ætlast til að fólk komi og segji skoðanir sínar ! hversu margir ætli mæti ? Hversu margir þora að segja það sem þeim liggur á hjarta ? Hvað ætli mál málanna sé? eru það lóðaverðin ? er það ósætti íbúa GArðsins að hafa ekki boðið Sigga í kaffi ;) ? er það skólamál ? er það spurning hvað ætti að gera við HS peningana ? Fjölskyldumál? Eitthvað annað ? Ætlið þið að fara ?

Eitt af því sem mig langar til að verði gert hérna er að fá steyptar gangstéttir og þó sérstaklega á milli Kef og sandgerðis. það er ekki hægt að bjóða fólki að hjóla með fjölskylduna sína á sama vegi og bílar sem aka á 90 + km hraða, ég kynntist því í fæðingarorlofinu hjá mér, þegar ég fór í gönguferð sem var allavega einus inni á dag og þá oftast oftar, við vorum eldsnöggar að labba því bærinn er nú ekki stór en það var bara alls ekkert við hæfi að labba allstaðar, Garðbrautin er hundleiðinleg og mikill hraði þannig ég reyni að forðast það að labba þar, gangstígarnir okkar eru ekki steyptir og maður nennir ekki að labba þá allan daginn ;( en jamm e´g vona að þið skiljið  mig.

Mig langar líka til þess að lóðin í kringum knattspyrnuhúsið verði löguð, þá malbikað eða snyrt á einhvern viðeigandi hátt, húsið er orðið gamalt og aðkoman mætti vera betri það er allavega mín skoðun og auðvitað finnst mér að bærinn eigi að taka þátt í því, enda eina félagshúsið í bænum ;) 

Íslenska landslið karla skeit á sig í gærkvöldi Hvað klikkaði ? Á að skipta um þjálfara er það málið ? eða á að leyfa öðrum að komast að í hópinn ? Er Eiður nógu góður fyrir landsliðið ? mín skoðun á Eiðni hehe (Eiði) er sú að hann virðist oft allls ekkert nenna þessu, mér finnst hann latastur við að sækja boltann og þarf helst að stóla á það að hann fái boltann alltaf í fætur svo hann geti eitthvað ! þetta er mitt álit á honum.

Jæja ætla að hætta þessu bulli endilega kommentið alltaf gaman að sjá hvað liggur ykkur á hjarta ;)

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 39
myndir !